|
|
11.09.2007 17:30:37 / stefán
Hallo hallo, Dr. Stefan skrifar hehe Vid Helga erum buin ad vera a ferdalagi um midevropu i taeplega 2 vikur. Leigdum bil og verid a ferdinni. Gretar og Christina kaerastan hans voru med okkur fyrstu vikuna en tau foru svo til Islands i gaer. Hofum stoppad i Budapest, Zagreb, Rijeka, Pula i Croatiu. Trieste a Italiu, Vin i Austurriki og nuna erum vid Helga stodd i Portorose i Sloveniu. Hofum notid okkar i botn. Vedrid hefur leikid vid okkur, myndir koma sidar a bloggid. Komum svo vid i Budapest a fimmtudaginn ad saekja pabba a flugvollin tar sem hann aetlar ad vera vid utskriftina mina i Debrecen 15. september. Eigum svo bokad flug til Islands 18. september og ta er eg alkominn heim. Eg atti 30 ara afmaeli i gaer og nutum vid Helga tess i Trieste, forum og fengum okkur steik um kvoldid sem var svona lala. Takka ollum sem mundu eftir mer a afmaelisdaginn, tid hin megid bara skita i pott , djok Nenni ekki ad skrifa meira i bili er ordinn svangur. Ble, ble Doktorinn of fru
»
11.07.2007 13:15:14 / stefán
Halló allir saman!!!

'Ég og Stefán erum í sumarfríi Ég
er auðvitað Helga Maggý 
Svakalga gott veður búið að vera hér á
suðurlandi síðan 07.07.2007
Stefán búinn að týna lyklunum af bílnum
einu sinni,þegar hann búinn að skríða inn í bílinn
gegnum skottið og reyna að opna hurðarnar innan frá en
ekkert gekk þar sem eihver þjófavörn kemur í veg fyrir að
hægt sé að opna hurðirnar nema með lykli eða fjarstýringu, en
þá fattði hann allt í einu að lyklarnir voru
í rassvasanum hjá honum 
Gleðilegt sumar
Helga Maggý og Stefán
Snær
»
07.05.2007 20:31:04 / stefán
Jæja þá er ég búinn í fæðinga og
kvensjúkdóma fræði prófinu og gekk bara vel. Ég og Daði
lásum eins og hestar fyrir þetta próf í rúmlega 3 daga sem
svona rétt dugði til að komast yfir efnið en upprifjun varð
frekar lítil. Ég var því svolítið á báðum áttum í
gærkvöldi hvort kunnáttan mín í faginu væri nægilega góð en
þetta gekk bara mjög vel. Við Daði fórum svo á besta
veitingastaðinn í bænum Wasabi sem er Sushi staður.
Eftir það var ég í ágætu lestrarstuði og náði ágætis
upprifjun í Ob-Gyn. Það er nefnilega ansi merkilegt að
jafnvel þótt maður sé búinn að lesa alveg á fullu fyrir próf
og kominn nánast með upp í kok daginn fyrir próf þá getur
maður náð góðum lestri fyrstu klukkutímana eftir
prófið. Þetta á sérstaklega við ef vel gengur því þá
vaknar áhugi og ýmsar spurningar í faginu. Hins vegar
verður maður að passa sig að ná þessum lestri stuttu eftir
prófið því annars er liklegt að letin taki völdin.
Ég og Daði fórum svo í ræktina seinnipartinn og
tókum hraustlega á því, og svo verður bara afslöppun í kvöld.
Ætla að spjalla við Helgu mína á skype en við höfum spjallað allt
of lítið undanfarið.
Ég, Daði og Ingvar ætlum svo að skella okkur í
ræktina í fyrramálið klukkan sjö og svo fer ég í verklegt í
lyflæknisfræði og hef svo lestur fyrir það próf sem ég og Daði
stefnum á að taka í kringum 23. maí.
Nú er ég farinn að hlakka mikið til að komast
heim, verður fínt að taka smá hlé frá stífum lestri og hitta
Helgu.
Svo verð ég víst 10 ára stúdent frá M.A 17. júní
og verður heljar veisla í íþróttahöllinni fyrir júbilanta á öllum
árum þann 16. júní. Útskriftarárgangur 1997 er einnig farinn
að skipuleggja djamm í tengslum við þetta tilefni. Búið er að
skipuleggja óvissuferð 16. júní og svo verður bekkjarpartý hjá 4. T
föstudagskvöldið 15. júní Verður mjög spennandi að hitta allt
liðið og heyra hvað allir hafa verið að gera síðastliðin 10
ár.
Jæja nóg í dag
Sziastok, Stefán
»
02.05.2007 17:08:52 / stefán
Jæja var allt of
latur núna þessa löngu helgi. Átti kannski inni að vera pínu
latur á föstudag og laugardag en ekki alveg fram á þriðjudag

Var reyndar duglegur að hreyfa mig sem er góðs
viti en svaf alltof langt frameftir og var of duglegur að horfa á
Arrested Development. Þetta eru alveg snilldarþættir svona þegar
maður kemst aðeins inn í þá, fannst ekkert varið í þetta eftir að
hafa horft á einn þátt.
Er aðeins byrjaður að lesa fyrir
lyflæknisfræðina, en ég og Daði ætlum hins vegar að byrja 4 daga
maraþon lestur fyrir Fæðinga og Kvensjúkdómafræði á morgun, tökum
prófið á mánudaginn. Svo er bara að skipta í lyflæknisfræði gírinn
og klára það próf áður en ég fer heim. 
Smá bakslag í vorinu hér síðustu þrjá daga, verið
sól en ekki nema 12-15 stiga hiti, bara svipaðar hitatölur og á
Íslandinu góða.
Sziastok
»
27.04.2007 20:46:53 / stefán
Jæja þá er skurðlæknisfræðiprófið búið og
gekk bara alveg ljómandi vel , og á ég þá bara eftir að
taka 2 próf áður en ég kem heim í lok maí. Var alveg að
stikna þegar ég kom út úr prófinu í svörtum jakkafötum, þar
sem úti var sól og blíða og um 25 stiga
hiti. 
Fór því heim og skipti yfir í íþróttagallann og
skellti mér í ræktina, og svo hef ég bara notið veðurblíðunnar í
dag. Fór m.a með Daða og fékk mér Sushi hlaðborð á einum
besta veitingastaðnum í Debrecen.
Var svo rétt í þessu að panta flug heim, fyrra
flugið frá Budapest til Stokkholm Skavsta 26. maí og svo fékk ég
tilboðsflug með Icelandexpress frá stokkholm Arlanda til Keflavíkur
fyrir rétt tæplega 9000 ISK með sköttum á sunnudaginn 27.
maí. Þarf svo bara að redda mér gistingu í Stokkhólmi.
Ætla að reyna að plata Ásu frænku hennar Helgu til að leyfa mér að
gista. 
Sziastok
»
20.04.2007 19:02:33 / stefán
Ég og Helga
eigum eins mánaðar trúlofunarafmæli í
dag.
»
19.04.2007 20:58:12 / stefán
Sælt veri fólkið.
Enn er ég að lesa fyrir skurðlæknisfræðiprófið,
efnið meira en ég reiknaði með, skilst reyndar að prófið sé ekki
svo mikið mál en maður er nú ekki bara að lesa þetta til að ná
einhverju fja... prófi

Kerfið er þannig hér í skólanum að maður skapar
sína eigin próftöflu, hvert fag hefur ákveðna daga í hverri viku og
ákveðinn hámarksfjöldi nemenda getur skráð sig á hvern dag.
Svo getur maður frestað prófinu í siðasta lagi sólarhring fyrir, og
þarf þá að finna annan lausan dag. Getur verið fínt að
stjórna því sjálfur í hvaða röð og nokkurn veginn hvenær maður vill
taka hvert próf. Sem sagt skurðlæknisfræðiprófið er bara hægt
að taka á föstudögum og þar sem mér fannst ég ekki kunna nóg í dag
til að taka prófið á morgun varð ég að fresta um viku, hefði líkleg
verið nóg fyrir mig að fá helgina til að klára að rifja upp fyrir
prófið en svona er þetta. Tek sem sagt prófið 27.
apríl.
Ég er í verklegu í fæðingar og kvensjúkdómafræðum
núna og byrja svo í verklegu í lyflæknisfræði 30. apríl í
tvær vikur, tek prófið í fæð-kvenna fyrstu vikuna í maí og svo
lyflæknisfræðiprófið undir lok maí.
Svo er það stóra fréttin því ég er búinn að skrá
mig í 5 vikna verknám á Barnaspítala Hringsins frá byrjun júní og
verð því nær elskunni minni , ætla svo að taka 2 vikna frí í
framhaldi af verknáminu og eiga quality time með Helgu minni.
Vona að ég fái að búa hjá Grétari þessar fimm
vikur. Get örugglega reynt að hjálpa honum eitthvað að ditta
að íbúðinni sem hann var að kaupa sér.
Ég hljóp hálft Debrecen maraþon á sunnudaginn,
var nú ekki nógu sáttur við tímann, hef oft gert mun betur. Í
ofanálag þá er ég tognaður í hásin á vinstri fæti eftir hlaupið,
hef reyndar átt í þessu annað slagið undanfarin ár
Á sunnudaginn 22. apríl er alþjóðlegur hjóladagur
og þá flykkjast íbúar Debrecen borgar í hópreið um borgina á
hjólunum sínum og skilja bílinn eftir heima. Að sjálfsögðu
ætla ég að taka þátt og hvet alla til að leggja bílnum og hjóla
þennan dag.
Jæja þetta er nú orðið fínt í dag,
Sziastok (bless)
Stefán
»
03.04.2007 22:13:55 / stefán
Hún Helga mín er að baka
hjónabandssælu og mig langar svo í, en því miður er ekki hægt
að senda sneið með tölvupósti.

Annars er allt á fullu í skólanum hjá
mér, er í verklegu í Kvensjúkdómafræðum núna, áhugavert en ekki mín
hilla. Fer annars næst í próf í skurðlækningum á föstudaginn
í næstu viku og þá eru bara 4 próf eftir með lokaprófinu (state
exam)
Kláraði lokaverkefnið í síðustu viku og
var það um skynjun sársauka. Á svo eftir að verja það eftir ca 3-4
vikur
Hér er komið sumar og
sól.
Kveðja frá Ungverjalandi,
Stefán
āƋ̋潢祤
»
21.03.2007 19:46:34 / stefán
Sælt veri fólkið.
Ég var að koma úr viku ferð til Stokkhólms með
elskunni minni henni Helgu. 
Gistum hjá Ásu móðursystur hennar Helgu, Viktori
syni hennar og kisunum tveimur Kastor og Happy. Það var alveg
frábært að vera hjá þeim og vonum við að Ása og Viktor komi sem
fyrst í heimsókn til okkar til Akureyrar. Sennilega verður erfitt
að taka kisurnar með en þær væru að sjálfsögðu velkomnar líka

Við Helga brölluðum ýmislegt í Stokkhólmi,
skoðuðum borgina, fórum á kaffihús, út að borða, versluðum aðeins,
fórum í skoðunarferð með Ásu, fengum lánaðan bílinn hennar Ásu og
villtumst 
Ófáar rauðvínsflöskur voru líka teygaðar heima
hjá Ásu á kvöldin, og var rautt Lindemans 2006
vinsælast.
Laugardaginn byrjaði ég reyndar á að æla fullt
klósett (nei djók), alla vega var slæmur í maganum og ældi
frameftir morgni. Veit ekki hvort það var uppsöfnuð streita og
missvefn sem olli þessu, einhver pest eða rauðvín og ostar frá
kvöldinu áður. Þetta lagaðist þó allt þegar líða fór á daginn,
notaði ógleðilyfið Coca Cola með góðum árangri en þetta er í eitt
af fáum tilvikum sem ég drekk þann annars óholla drykk.

Á laugardagskvöldið fórum við svo á tónleika með
Nelly Furtado sem var mjög gaman, eyrnatapparnir komu sér þó vel
til að dempa aðeins hávaðann sem eflaust var vel yfir
hættumörkum.
Toppurinn var svo í gærkvöldi 20.03.2007 klukkan
22 þegar ég og Helga trúlofuðum okkur 
Brúðkaupsdagurinn verður svo einhvern tímann í
haust þegar ég er búinn í skólanum.
Er sem sagt kominn til Debrecen á ný með gull
hring á baugfingri vinstri handar og mjög sáttur við
það.
Skál fyrir því
Stefán
»
02.11.2006 14:30:40 / hmall
SÆLL,HVAÐ SEGIR ÞÚ GOTT GAMLI
VINUR?GAMAN AÐ ÞÚ SKULIR ENN VERA AÐ KÍKJA Á BLOGGIÐ MITT
KVITTAÐU FYRIR ÞÚ NENNIR ÞVÍ NEFNILEGA ALDREY ALGJÖR
NJÓSNARI 
ÉG ER ENN AÐ BÍÐA EFTIR AÐ FÁ AÐ BYRJA Á
SNYRTISTOFUNNI,HEPPIN
ÉG VAR HÁLFPARTINN SVIKINN MEÐ AÐ
BYRJA ÞAR, ÁTTI AÐ BYRJA UM MIÐJAN OKT,EN ER ENN EKKI BYRJUÐ AÐ
VINNA,EN SVONA GETA VINNIVEITENDUR KOMIÐ FRAM VIÐ
MANN,HEPPIN
MIG LANGAR NÚ EKKERT SVAKALEGA AÐ
BYRJA AÐ VINNA HJÁ SVONA FYRIRTÆKI,SEM SVÍKUR MANN
STRAX Í BYRJUN ÉG HEF EKKI
SAGT MITT SÍÐASTA Í ÞESSUM MÁLUM
SORRY ÞETTA ER NÚ EKKI Þ AÐ
SKEMMTILEGASTA SEM ÉG HEF SKRIFAÐ Á SÍÐUNA MÍNA EN SKRIFA BETUR Á
MORGUN.
KVEÐJA KÁTÍNA MALL

»
09.10.2006 13:45:50 / hmall
HÆ. HEF NÚ LÍTIÐ AÐ SEGJA TÍMINN MIN Á SUBWAY ER LIÐINN NÚ BÝÐ ÉG
BARA EFTIR AÐ FÁ AÐ BYRJA Á ABACO SNYRTISTOFUNNI, SPENNANDI TÍMAR
FRAM UNDAN ALLTAF GOTT AÐ SKIPTA UM UMHVERFI. STEFÁN FÓR Í INNKAUP
Í BLÓMAVAL UM DAGINN OG KEYPTI TVO FULLA POKA AF JÓLADÓTI,BARA
KRÚTTLEGT. HEYRUMST Helga Maggý :-)
»
25.09.2006 13:28:35 / hmall
Hæ, hef nú ekki verið dugleg að
blogga nýlega 
VORUM Í BÚSTAÐ Í TJARNARGERÐI INNST Í
EYJAFIRÐI (rétt hjá Leynishólum).
KEYRÐUM EFTIR VINNU ALLA DAGA Í 40 MÍNÚTUR OG VAKAÐ
FRAM Á NÓTT.
ÞAR VAR SPILAÐ, ETIÐ, FARIÐ Í HEITA
POTTINN, GÖNGUTÚRAR, HLAUPIÐ, FARIÐ Í BERJAMÓ, LANDSLAGIÐ
TEIKNAÐ, MYNDAÐ Á VIDEO OG ALLS KONAR
VÉLAR.
REYNDUM AÐ RÓA Á BÁTNUM EN ÞAÐ GEKK
BRÖSULEGA ÞAR SEM FESTINGARNAR FYRIR ÁRARNAR VORU BROTNAR
.
SVO Á KVÖLDIN VAR PRJÓNAÐ OG SAUMAÐ Í OG
GERÐAR MARGAR TILRAUNIR VIÐ VÖFFLUBAKSTUR EN HELV... VÖFFLUJARNIÐ
VAR AÐ STRÍÐA OKKUR. SVO KOM SÍSÝ SÍÐASTA KVÖLDIÐ OG REDDAÐI
MÁLUNUM OG FENGUM VIÐ DÝRINDIS VÖFFLUR MEÐ SULTU OG
RJÓMA.
BÚSTAÐURINN VAR SVO ÞRIFINN HÁTT OG LÁGT
Á FÖSTUDAGINN OG LYKLUNUM SKILAÐ.
SVO TÓK ALVARAN VIÐ AFTUR, STEFÁN VAR Á
NÆTURVAKT ALLA HELGINA Á LYFJADEILDINNI OG ÉG VAR AÐ VINNA Á SUBWAY
14-21 UM HELGINA ÞANNIG AÐ
VIÐ HITTUMST NÁNAST EKKERT UM HELGINA,
NEMA HELST Á MORGNANA ÞEGAR STEFÁN KOM HEIM AF VAKTINNI OG BJÓ TIL
HAFRAGRAUT.
STEFÁN BAKAÐI SVO BRAUÐ Í BRAUÐVÉLINNI Í
GÆR (ÉG ER BÚIN AÐ BÍÐA EFTIR ÞVÍ AÐ HANN GERÐI ÞAÐ ALVEG SÍÐAN VIÐ
FLUTTUM INN, ÞETTA ER HANS VERK 
BRAKANDI SEPTEMBERBLÍÐA ÚTI, STILLT OG
KALT, FÍNT GÖNGUTÚRAVEÐUR.
ER AÐ FARA AÐ VINNA NÚNA OG STEFÁN ER AÐ
FARA AÐ ÞRÍFA BÍLINN.
HAFIÐI ÞAÐ GOTT, SKÍTIÐI Í POTT, GÓÐA NÓTT

HELGA MAGGY
»
31.08.2006 11:19:30 / hmall
Ég fer í helgarfrí um helgina
ljúft.
Maður getur bara ekkert sinnt heimilinu því
maður er alltaf að vinna og svo langar manni bara að kúra þegar
maður kemur heim á kvöldin,ég vinn öll kvöld til 23.
Þegar maður á svona fallegt heimili eins og ég þá
langar manni að gera sætt og njóta þess.
Stefán er mjög virkur í húsverkunum hér heima
enda algjör snyrtipinni,mætti vera duglegri
að henda sokkum í óhreina tauið.
Hann t.d. raðaði öllum fötunum mínum í
fataskápinn í gær,svona flott eins og í fatabúðunum
skiluru.Ég var einmitt búin að panta hjá
honum fyrir löngu hann brýtur svo vel saman ég hef nefnilega ekki
þolinmæðina sem hann hefur.
»
30.08.2006 14:38:14 / hmall
HÆ
VIÐ VORUM AÐ VERSLA EITT STIKKI
VOLVO S 60
OG ÞAÐ ER LJÚFT AÐ LÁTA DRAUMA SÝNA
RÆTAST Í BYLGJUM,ÞARF EKKI AÐ LÁTA MIG DREYMA
LENGUR
Fer að vinna á Abaco um miðjan oktober
hlakka geggjað til
seinna Helga Maggý.
»
Síður: 1 2 3 4
|
Ni�?�?�?°urtalning
Fyrir 1719 dögum
|